Næstu bólusetningar á Norðurlandi með Pfizer bóluefninu
Í næstu viku fær Heilbrigðisstofnun Norðurlands senda 720 skammta af Pfizer bóluefninu sen verður nýtt til að bólusetja seinni bólusetningu hjá þeim sem fengu fyrri skammt dagana 2.-5. mars. Í þeim hópi eru m.a. þeir sem eru 80 ára og eldri. Íbúar Skagafjarðar og Austur-Húnavatnssýslu mega eiga von á sms skilaboðum eða símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram.
Á heimasíðu HSN kemur fram að dagana 29.-31. mars sé gert ráð fyrir að bólusetja seinni bólusetningu hjá þeim sem fengu bólusetningu dagana 9.-11. mars og halda áfram að bólusetja aldurshópinn 70-79 ára en meginreglan er að bólusetja þá elstu fyrst. Stefnt er að því að klára að bólusetja árganga 1944 og 1945 og ef hægt verður þá verður byrjað á árgangi 1946.
Dagana 6.-9. apríl standa vonir til að halda áfram með að bólusetja a.m.k. árganga 1946, 1947 og 1948.
Vakin er athygli á því að um áætlun er að ræða og því sett fram með fyrirvara um breytingar.
Sjá nánar HÉR