Námskeiðið Börn og umhverfi á vegum RKÍ
Rauði krossinn í Skagafirði heldur námskeiðið Börn og umhverfi, fyrir einstaklinga á aldrinum 12-16 ára (fædd 1999 - 2003). Á námskeiðinu, sem er 16 kennslustundir, er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn.
Fjallað er um árangursrík samskipti, leiðtogahæfni, agastjórnun, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð er áhersla á umfjöllun um slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu ásamt ítarlegri kennslu í skyndihjálp. Að auki fá þátttakendur innsýn í sögu og starf Rauða krossins. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Anna Jóna Guðmundsdóttir, leikskólakennari og Sigrún Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur.
Námskeiðið er haldið í húsnæði deildarinnar, Aðalgötu 10 á Sauðárkróki, dagana 4., 5., 7. og 11. maí 2015 kl. 17 – 20 alla dagana. Námskeiðsgjald er kr. 8900, innifalin er nemendahandbók og í lok námskeiðs fá þátttakendur viðurkenningarskjal.
Hægt er að skrá sig á námskeiðið á heimasíðu Rauða Krossins og þar er einnig hægt að greiða fyrir námskeiðið með kreditkorti.
Nánari upplýsingar og skráningar hjá Guðnýju Zoëga 8996409 eða gudnyz@skagafjordur.is og Kristínu Bjarnadóttur 8678547 eða kristin@gsh.is.
/Fréttatilkynning