Nautakjöt frá Hofsstaðaseli í verslunum Hagkaupa á ný

Mynd: Íslandsnaut
Mynd: Íslandsnaut

Síðastliðið sumar greindi Morgunblaðið frá því að verslanir Hagkaupa væru farnar að selja íslenskt nautakjöt af Galloway- og Limousin kyni, fætt og uppalið í Hofsstaðaseli í Skagafirði af Bessa Frey Vésteinssyni og fjölskyldu.

Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, leyfði sér að fullyrða að þetta væri besta nautakjöt sem komið hafði í verslanir hér á landi.

Mbl greinir frá því að dag að allt hefði farið á hliðina þegar kjötið kom í verslanir sl. sumar og leikurinn verði því endurtekinn í ár og boðið verður upp á úrvals nautakjöt frá Bessa í Hofsstaðaseli í verslunum Hagkaupa.

Kjötið hefur verið látið meyrna við kjöraðstæður í þrjár vikur og í boði verða lundir, ribeye og file.

“Bessi legg­ur mikla áherslu á sjálf­bærni í rækt­un sinni, og því ganga grip­irn­ir fyrstu mánuðina úti á beit með mæðrum sín­um og eru svo ald­ir upp á heimaræktuðu grasi, korni og vatni, sem er lyk­ill­inn að mikl­um gæðum,” segir í umfjöllun mbl.is.

 /SMH

Fleiri fréttir