Norðaustan 10-15 m/s en hægari til landsins
Norðaustan 10-15 m/s er á Ströndum og Norðurlandi vestra, en hægari til landsins. Austan 5-10 í kvöld og á morgun. Skýjað og úrkomulítið. Hiti 4 til 10 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Hæg suðaustlæg átt. Rigning á Austfjörðum og stöku skúrir SA-lands en skýjað með köflum og þurrt annars staðar. Hiti 2 til 7 stig, en vægt frost í innsveitum fyrir norðan.
Á mánudag og þriðjudag:
Hæg suðaustlæg eða breytileg átt og smáskúrir S- og A-til, en annars skýjað með köflum. Hiti 0 til 5 stig fyrir sunnan, en um frostmark N-lands.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir austlæga átt, 3-10 m/s, með dálitlum skúrum um landið sunnanvert, en þurrt fyrir norðan. Hiti breytist lítið.