Norðurland vestra með flest sauðfjárbú með yfir 600 kindur

Í skýrslu Byggðastofnunar um dreifingu sauðfjár á Íslandi segir að af 470.678 kindum á landinu í nóvember 2015, voru 37.716 í Vestur-Húnavatnssýslu og 38.266 í Austur-Húnavatnssýslu. Þá kemur einnig fram að af 2.498 sauðfjárbúum á Íslandi, voru 108 í Vestur-Húnavatnssýslu og 120 í Austur-Húnavatnssýslu. Norðurland vestra státar af flestum sauðfjárbúum með fleiri en 600 kindum en þau eru 35 talsins. Sauðfjárbú með 400-599 kindur voru einni flest á Norðurlandi vestra, 75 talsins.

Þegar litið er til fjölda sauðfjár í sveitafélögum má sjá að flestar kindur er í Húnaþingi vestra, alls 37.716 og eru næst flestar í Skagafirði eða 34.623. Fjöldi kinda í Blönduósbæ eru 3.338, 6.281 í Skagabyggð, 102 kindur eru á Skagaströnd og 28.545 í Húnavatnshreppi. Ef horft er til sauðfjárbúa á Norðurlandi vestra þá eru 14 bú í Blönduósbæ, 2 á Skagaströnd, 22 í Skagabyggð og í Skagafirði eru þau 182. Í Húnavatnshreppi eru þau 82, sauðfjárbúin og í Húnaþingi vestra 108, líkt og kemur fram hér að ofan.

Samkvæmt skýrslunni er fjöldi sauðfjárbúa 2.498 og þar af eru lögbýlin 2.175, samkvæmt lögbýlaskrá Þjóðskrár. Flest staðsetningarhnit sauðfjárbúanna eru fengin frá Þjóðskrá en þó þurfti að áætla 303 staðsetningarhnit út frá heimilisfangi og göngum um vegakerfi frá Landmælingum Íslands

Fjöldi sauðfjárbúa samkvæmt gögnunum er 2.498 og þar af eru 2.175 lögbýli samkvæmt lögbýlaskrá Þjóðskrár. Staðsetningarhnit sauðfjárbúanna eru flest fengin frá Þjóðskrá en 303 staðsetningarhnit þurfti að áætla út frá heimilisfangi og gögnum um vegakerfi sem kemur frá Landmælingum Íslands.

Skýrslu Byggðastofnunar má sjá hér.

Fleiri fréttir