Nú er hægt að panta tíma í bólusetningu
Bólusetningar næstu viku hjá HSN á Sauðárkróki, verða miðvikudaginn 23. júní í Fjölbrautaskólanum, en samkvæmt tilkynningu frá stofnuninni munu þeir sem koma í seinni bólusetning fá boð um það. Þá er bæði verið að ræða þá sem eiga að koma í seinni Pfizer, það eru þeir sem voru bólusettir 2. júní og fyrr, og einnig þeir sem eiga að koma í seinni Astra, það eru þeir sem voru bólusettir 9. apríl og fyrr. Þeir sem ekki hafa fengið fyrri bólusetningu geta nú pantað sjálfir með því að hringja í síma 432 4236 og pantað sér tíma í bólusetningu.
„Í næstu viku verður boðið upp á Pfizer í fyrri bólusetningu, og þeir sem mæta í hana fá seinni bólusetningu 14. júlí. Einnig verður sama dag boðið upp á Jansen og mikilvægt að þeir sem ekki sjá sér fært að mæta aftur í bólusetningu eftir þrjár vikur, nýti sér Jansen sem einungis er ein bólusetning.
Allir í árgangi 2005 geta nú bókað tíma í bólusetningu með Pfizer og þeir sem ekki eru orðnir 16 ára í þeim árgangi mæta í fylgd með forráðamanni. Þeir sem hafa sögu um COVID sýkingu geta nú bókað bólusetningu en mælt er með því að þeir fái Jansen.
Mikilvægt er að þeir sem ætla að nýta sér bólusetningar mæti í vikunni. Framvegis verða fyrri bólusetningar ekki vikulega.
Við hvetjum fólk til að skrá símanúmer sín í heilsuveru, einnig passa upp á að yngra fólkið og útlendingar sem búa á svæðinu skrái símanúmer sín,“ segir í tilkynningu HSN.