Núna er ég tilbúinn að hjálpa ykkur
Myndband sem Sauðkrækingurinn Daníel Þórarinsson setti á fésbókarsíðu sína nýlega hefur vakið mikla athygli en þar opnar hann hjarta sitt fyrir almenningi er hann opinberlega kemur út úr skápnum. „Ég er að opna mig með mínar tilfinningar, sem hljóðar þannig að ég fæddist aðeins öðru vísi en flestir aðrir,“ segir Daníel í myndbandinu. Þegar þetta er skrifað hafa 22 þúsund manns skoðað myndbandið.
Daníel spyr hvað það er að vera öðruvísi. „Maður er alltaf að passa sig að falla inn í eitthvað norm, en þetta norm er ekkert rosalega frábært fyrir alla og ekki fyrir mig. Það er búið að vera mikil vinna að reyna falla inn í þetta norm.“ Hann segist vera kominn á þann stað í sínu lífi að hann ætli að sleppa tökunum á því og koma út úr skápnum. „Allt mitt líf er ég búinn að reyna að vera einhver annar en ég er. En það sem skiptir máli er að manni líði vel hérna,“ segir Daníel og bendir á hjarta sitt.
Daníel segir í samtali við Feyki þetta hafa legið þungt á sér áður en hann tók þá ákvörðun að opinbera samkynhneigð sína en það hafi heldur betur breyst í hina mestu hamingju. Fyrirfram hafði Daníel ekki búist við því.
Í myndbandinu hvetur Daníel aðra til að hafa samband við sig ef viðkomandi telji hann geta hjálpað við eitthvað. Að sögn Daníels hefur fólk þegar haft samband með ýmis vandamál og margt jákvætt komið út úr því.
„Núna er ég tilbúinn að hjálpa ykkur. Talið við mig þó að þið þekkið mig ekkert,“ segir Daníel í lok myndbandsins.
Ég vildi óska þess að allir fylgdu hjartanu sínu og hjálpuðust að við gera góðan heim betri <3 I want for everyone to follow their heart and help each other to make this world even better <3 Share if you like this message :)
Posted by Daníel Þórarinsson on 22. ágúst 2016