Ný bók um stjórnun og rekstur í ferðaþjónustu

Ferðamáladeild Háskólans á Hólum hefur gefið út nýja bók um stjórnun og rekstur í ferðaþjónustu, sem ber heitið Stjórnun og rekstur í ferðaþjónustu-afþreying á sjó og vatni. . Bókin er rituð fyrir stjórnendur, starfsmenn og nemendur í greininni.
Fjallað er um atriði eins og öryggismál, vöruþróun, stofnun fyrirtækja, leyfisveitingar, fjármögnun, umhverfismál, áætlanagerð, ráðningu starfsmanna, móttöku gesta, gæði þjónustu og fleira sem lýtur að fagmennsku í stjórnun og rekstri.
Sérstakir kaflar eru í bókinni um afþreyingu á sjó og vatni. Mikil áhersla er lögð á að benda lesendum á frekara fræðsluefni um hvert viðfangsefni fyrir sig auk þess sem að listar yfir lög og reglugerðir, gagnlegar vefsíður og fleira leiða lesendur áfram.
Höfundur bókarinnar er Ingibjörg Sigurðardóttir lektor en inngangskafla um ferðmennsku og upplifun ritar Guðrún Þóra Gunnarsdóttir lektor og nýráðinn forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála. Útgáfan var styrkt af Starfsmenntaráði sem og af Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar stofnanda Hagkaupa.
Bókin er afrakstur áralangrar samvinnu ferðamáladeildar við fyrirtæki og samtök og stofnanir ferðaþjónustunnar. Hvatning Samtaka ferðaþjónustunnar ýtti undir að bókin væri gefin út. Var bókin kynnt á markaðstorgi sem haldið var í tengslum við aðalfund Samtakanna í Reykjavík 14. og 15. mars og við það tilefni tóku fulltrúar þeirra við fyrstu eintökunum.
Bókin er fáanleg hjá Háskólanum á Hólum og kostar kr. 3.000. Best er að hafa samband við Sigurlaugu Stefánsdóttur, silla@holar.is eða í síma 455 6309.