Nýr Kiwanisklúbbur fyrir konur

Þann 9. september sl. var haldin vígsluathöfn Kiwanisklúbbsins Freyju í Skagafirði, þegar hann formlega var vígður inn í Kiwanisfjölskylduna. Stofnfélagar Freyju voru sextán talsins, og klúbburinn eingöngu skipaður konum.
„Kiwanis er þjónustuhreyfing með einkunnarorðin „Börnin fyrst og fremst“. Þetta er alheims hreyfing sem vinnur að málefnum barna undir þessu kjörorði. Hreyfingin hefur unnið hörðum höndum við að útrýma stífkrampa í samvinnu við UNICEF og með þessu verkefni er verið að bjarga lífi 129 milljón mæðra og ófæddra barna þeirra,“ segir Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir forseti Freyju í Feyki í dag. Hún segir að Íslandshreyfingin hafi verið í allskyns verkefnum t.d. hjálma úthlutun til allra 1. bekkinga á Íslandi, sala á K-lyklinum þar sem unnið er undir kjörorðunum „gleymum ekki geðsjúkum“ en gengið verður í hús í næstu viku og hann boðinn til sölu.
Nánar í Feyki