Nýtt nafn komið á sameinað hestamannafélag í Skagafirði
Sameininganefnd Skagfirsku Hestamannafélaganna fundaði í gær og samkvæmt vef Léttfeta var farið var yfir atkvæðagreiðslu á nafni hins nýja félags. Niðurstaðan sú að nafnið Fluga fékk flest atkvæði og mun hið nýja félag því bera nafnið Fluga.
Samkvæmt vefnum gengur önnur vinna nefndarinnar vel. Margt þarf að skoða en flest mál eru þó að taka á sig skýrari mynd.