Oddviti Pírata nýbökuð móðir
Eva Pandora Baldursdóttir efsti maður Pírata í Norðvesturkjördæmi og unnusti hennar Daníel Valgeir Stefánsson eignuðust stúlku sl. þriðjudag. Eva Pandora segir að litla daman hafi látið sjá sig eftir nokkuð langan aðdraganda.
„Missti vatnið kl. 15 laugardaginn 10. sept og var send á fæðingardeildina en fór ekki í gang fyrr en þriðjudaginn 13. sept kl 7:15 eftir nokkrar tilraunir til gangsetningar,“ segir Eva Pandora á Facebooksíðu sinni en hún og Daníel búa á Sauðárkróki og fæðingardeildin sem um ræðir er á Akureyri.
Eva segir að í kjölfarið hafi allt gengið mjög hratt og hart fyrir sig sem gefi til kynna að litla daman sé ekki mjög stressuð týpa en vinni vel undir álagi. „Núna er litla fjölskyldan komin heim og öllum heilsast vel. Við Daníel Valgeir Stefánsson erum í skýjunum með litlu prinsessuna okkar,“ segir Eva í lok færslunnar og óskar Feykir hinum nýbökuðu foreldrum til hamingju.