Öðruvísi öskudagur
Nú fer að líða að skemmtilegustu dögum ársins, bollu-, sprengi- og öskudegi en samkvæmt almanakinu verða þeir í næstu viku. Eins og svo oft áður setur kórónuveirufaraldurinn strik í reikninginn og hafa Almannavarnir af þeim sökum gefið út hugmyndir að öðruvísi öskudegi. Mælt er með að haldið verði upp á daginn á heimavelli, í skólanum, frístundaheimilinu eða félagsmiðstöðinni.
„Brjótum upp á hversdagsleikann með því að mæta öll í búningum. Ungir sem aldnir. Nú er tækifæri að endurvekja gamlar öskudagshefðir eins og að búa til öskudagspoka og slá köttinn úr tunnunni. Með sóttvarnir í huga að sjálfsögðu.
Syngjum fyrir sælgæti
Ef hefð er fyrir því að ganga á milli húsa eða fyrirtækja í hverfinu væri upplagt að foreldrafélög tækju upp á sína arma að halda utan um hvar sé hægt að koma og syngja fyrir nammi. Athugið að gæta fyllstu sóttvarna og gefið aðeins sérinnpakkað sælgæti,“ segir á Covid.is.
Þessu ástandi veltir foreldrafélag Árskóla á Sauðárkróki fyrir sér og auglýsir á samfélagsmiðlum eftir viðbrögðum fyrirtækja og stofnana á Sauðárkróki og hvort þau hafi hug á að taka á móti börnum sem syngja. Ennfremur vill félagið vita hvort einhver treysti sér ekki til þess með tilliti til sóttvarnarreglna. „Við myndum svo deila þessum lista sem víðast til að einfalda lífið fyrir okkur öll,“ segir m.a. í Facebookfærslu á Skín við sólu en þar er hægt að svara spurningum foreldrafélagsins.