Ók á tvær bifreiðar og stakk svo af

Mynd af Facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra.
Mynd af Facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra.

Lögreglan á Norðurlandi vestra greinir frá því á Facebooksíðu sinni að síðastliðinn laugardag hafi alvarlegt atvik átt sér stað í umdæminu þegar ökumaður bifreiðar ók á tvær aðrar bifreiðar og hvarf síðan af vettvangi. Ekki urðu slys á fólki en umtalsvert eignatjón.

Sá sem stakk af fannst um klukkustund síðar á bensínlausri bifreið sinni í utanverðum Skagafirði og var mjög ölvaður er lögregla kom að. Var hann látinn sofa úr sér vímuna og síðan leystur úr haldi eftir skýrslutöku morguninn eftir.  

Þá hafði lögreglan afskipi af tveimur erlendum ökumönnum, hafði annar þeirra ekið út af þjóðvegi 1 á Holtavörðuheiði en hinn var stöðvaður vegna hraðaksturs, einnig á þjóðvegi 1. Eru báðir þessir ökumenn grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna auk þess sem annar þeirra reyndist jafnframt ölvaður. 

Að vanda hafði lögreglan virkt eftirlit á þjóðvegum umdæmisins og voru 52 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur þessa fyrstu helgi marsmánaðar.

Fleiri fréttir