Ólöglegt varnarefni í 5-kornablöndu
Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur framleiðslulotum af 5-kornablöndu frá Svansö sem Kaupfélag Skagfirðinga flytur inn. Varnarefnið etýlen oxíð greindist í vörunni sem er ekki leyfilegt til notkunar í matvæli. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi lotur:
- Vöruheiti: Svansö 5 blanding, 350 g
- Strikamerki: 5760932013107
- Best fyrir dagsetningar: 06.01.2022 og 14.03.2022
Þeir sem hafa keypt vöruna geta skilað henni í verslunina eða haft samband við KS í síma 455-4530 eða sent tölvupóst til arni.kristinsson@ks.is.
/Fréttatilkynning