Opinn fundur foreldra í Miðgarði í kvöld

Varmahlíð í Skagafirði. Ljósm./BÞ
Varmahlíð í Skagafirði. Ljósm./BÞ

Foreldrar barna á biðlista á leikskólanum Birkilundi hafa boðað til opins fundar í Menningarhúsinu Miðgarði í kvöld og hefst fundurinn hefst kl 20:30. „Skorum við sérstaklega á fulltrúa sveitarstjórna sem hafa með þessi mál að gera til að koma og svara þeim spurningum sem brenna á foreldrum,“ segir meðal annars í fréttatilkynningu.

Foreldrar hafa ritað opið bréf til Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps, í Feyki og á Feyki.is, þar sem spurt er hvort eina lausnin sé að flytja burt.

Dagskrá fundar er:

  • Bráðabirgðalausn vegna vöntunar á leikskólarýmum í vetur –
  • Varanleg lausn á leikskólamálum í Varmahlíð, hvert er framhaldið? –
  • Orðið er laust -

„Vonumst við, foreldrar, til að sjá sem flesta er málið varðar á fundi þessum og skorum við sérstaklega á fulltrúa sveitarstjórna sem hafa með þessi mál að gera til að koma og svara þeim spurningum sem brenna á foreldrum og öðrum sem málið varðar. Við trúum því að hægt sé að finna bráðabirgðalausn á vandanum svo að fólk geti stundað sína vinnu áfram vitandi að börnin þeirra eru í öruggum höndum,“ segir í fréttatilkynningu frá foreldrum.

Með vinsemd og virðingu,

Unnur Gottsveinsdóttir

Stefán Gísli Haraldsson

Anna Lilja Guðmundsdóttir

Finnur Sigurðarson

Aníta Ómarsdóttir

Sigurður Jóhannsson

Helga Rós Sigfúsdóttir

Sigurður Óli Ólafsson

Ólöf Ólafsdóttir

Stefán Halldór Magnússon

Kristín Halla Bergsdóttir

Guttormur Hrafn Stefánsson

Svana Ósk Rúnarsdóttir

Ástþór Örn Árnason

Fleiri fréttir