Óvíst að Landsmót hestamanna 2016 verði á Vindheimamelum

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum í dag ríkir óvissa um að Landsmót hestamanna verði haldið á Vindheimamelum í Skagafirði árið 2016, þrátt fyrir að viljayfirlýsing þess efnis hafi verið undirrituð fyrr á þessu ári.

Var fulltrúum hestamannafélaganna í Skagafirði greint frá þessu á símafundi í fyrradag, en undirritun samnings hafði verið frestað í vor vegna anna við undirbúnings landsmótsins á Hellu. Að sögn Jónínu Stefánsdóttur, formanns hestamannafélagsins Stíganda í Skagafirði, komu þær hugmyndir að færa mótið á höfuðborgarsvæðið algjörlega aftan að mótshöldurum á Vindheimamelum.

„Við erum bara að kanna okkar leiðir, þetta kemur okkur náttúrulega óskaplega á óvart og okkur finnst þarna mjög illa vegið að okkur og landsbyggðinni. Við vorum með sölubás á Hellu, að beiðni formanns Landssambands hestamanna, þar sem við vorum að kynna landsmótið 2016,“ segir Jónína og bætir við að góðu heilli hafi ekki verið hafnar stórar framkvæmdir á mótssvæðinu.

„Ég get náttúrulega ekki svarað því að þessari stundu hvernig þetta fer,“ segir Jónína ennfremur og reiknar með að tekist verði á um málið á landsþingi hestamanna um helgina. Aðspurð segist um hún ekkert of bjartsýn á niðurstöðuna. „Ég er ekkert of bjartsýn, því miður. Það virðast bara vera einhver peningaöfl þarna fyrir sunnan sem geta keypt sér þennan rétt, það bendir allt til þess að það sé einhver sem stjórnar þarna á bakvið. Þetta er afskapalega ódrengilega unnið finnst mér og verið að sundra hestamönnum og landsbyggðinni frá þéttbýlinu. Þegar landssamtök vinna svona þá eru þau ekki landssamtök, það gefur auga leið.“

 

 

Fleiri fréttir