Páll snýr aftur í ritstjórastólinn
Páll Friðriksson, sem lét af störfum sem ritstjóri Feykis í árbyrjun 2014, sest aftur í ritstjórastólinn frá og með deginum í dag. Berglind Þorsteinsdóttir, sem hefur ritstýrt Feyki síðan í janúar 2014 og var þar á undan blaðamaður frá því í júlí 2011, lætur nú af störfum og sest á skólabekk.
Páll er lesendum Feykis að góðu kunnur en hann kom til starfa sem blaðamaður hjá Feyki snemma árs 2008 og varð ritstjóri haustið 2011. „Ég er ánægður að vera kominn aftur, eftir að hafa hlaðið batteríin, segir Páll. „Ég vonast til að fólk verði duglegt að senda fréttir eða benda á eitthvað skemmtilegt.“
Feykir þakkar Berglindi farsæl störf í þágu blaðsins og býður Pál velkominn aftur til starfa.