,,Passa að þrífa húðina mína mjög vel bæði kvölds og morgna"

Þóra Rut Jónsdóttir er 22 ára gömul Sauðárkróksmær en er núna búsett í Kópavoginum. Hún útskrifaðist sem viðskiptafræðingur úr HR í janúar og byrjaði nýlega að vinna sem verkefnastjóri hjá ferðaþjónustufyrirtæki sem heitir Eleven Experience.

Hver eru þín helstu áhugamál?

Mín helstu áhugamál eru fótbolti og aðrar íþróttir, tíska, eldamennska og að ferðast um heiminn.

fas

Hver er þín daglega förðunarrútína?

Ég reyni að passa mig alltaf að þvo á mér andlitið vel áður en ég læt á mig farða.

1. Þegar það er búið nota ég Seaweed Mattifying Moisture Lotion frá The Bodyhop, ég byrjaði nýlega að nota það rakakrem og finnst virka rosalega vel á húðina mína. 

2. Síðan nota ég smá hyljara frá The Make Up Store.

3. Næst læt ég á mig Sheer and Perfect foundation frá Shiseido, sem er fljótandi farði sem virkar samt svo léttur á andlitinu.

4. Síðan nota ég laust púður frá Smashbox aðeins yfir.

5. Ég nota oftast augnbrúnalit frá KIKO til þess að skerpa á augabrúnunum mínum. 

6. Og síðan nota ég Ultratech maskara einnig frá KIKO. Það merki uppgvötaði ég þegar ég bjó á Ítalíu og kolféll fyrir. Svo góðar vörur en samt á viðráðanlegu verði sem er ekki gefið hér á landi, held ég hafi aldrei farið þarna inn án þess að kaupa eitthvað.

Ef ég er að fara eitthvað fínna hendi ég á mig smá sólarpúðri, svo finnst mér geggjað að nota Wonder Powder frá Make Up Store yfir og ekki má gleyma varalitnum!

dagleg.förð.

Hver er þín uppáhalds förðunarvara?

Held ég verði að segja Ultra Tech maskarinn frá KIKO, en ég er komin með æði fyrir andlitsmöskum og nýlega keypti ég mér Silica Mud mask frá Blue Lagoon sem er alveg geggjaður, þannig hann er uppáhalds líka.

uppah.

Hvenær byrjaðir þú að farða þig?

Ætli það hafi ekki verið í kringum 7.bekk. Sem er alltof ungt, en það varð allt í einu algjört must að vera með maskara á þessum tíma. Við vinkonurnar þróuðum með okkur dýran smekk á förðunarvörum frekar snemma, held að það hafi bara verið í 8-9.bekk sem við vorum allar komnar með maskara frá Dior og ekkert annað kom til greina. Það breyttist nú samt eitthvað seinna meir.

aef

Hvað er þitt versta „förðunarslys“?

Ég var mjög lengi að finna mér farða sem hentaði húðinni minni, en veit ekki hvort það ferli geti talist sem slys eða ekki. Annars reyndist eye-liner tímabilið sem átti sér stað ekki alveg jafn flott og ég hélt, en það var töff að vera pínu emo og þá þurfti ég auðvitað að vera með. Frekar ánægð að facebook hafi ekki verið til á þessum tíma.

En svona almennt, hver eru þá algeng „förðunaslys“ að þínu mati?

Of dökkt meik finnst mér alltaf slæmt, og augabrúnir sem er búið að eiga alltof mikið við.

þóra

 

Hvað er þitt helsta náttúrulega leyndarmál að betra útliti?

Ég þarf virkilega að passa upp á að þrífa húðina mína mjög vel bæði um morguninn og á kvöldin áður en ég fer að sofa. Ég hélt alltaf að það væri bara nóg að þrífa hana á kvöldin, en húðin mín er búin að skána mikið eftir að ég tók uppá því líka á morgnanna. Svo reyni ég að sleppa alveg farða þá daga sem ég kemst upp með það, leyfa húðinni aðeins að hvíla sig. Annars er það bara það klassíska að drekka nóg af vatni, borða rétt og hreyfa sig, þá líður manni betur á alla vegu.

Lítur þú upp til einhvers einstaklings þegar kemur að förðun?

Ég hef rosalega gaman af öllum þessum förðunarpíum sem ég er með á facebook og eru duglegar að deila vinnunni sinni, þá ber helst að nefna Ólínu Ýr vinkonu mína, Brimdísi Make Up Store drottningu, Ísabellu Guðmunds og Fanney Skúla. Annars gefur Silja Ýr vinkona mín mér góð ráð í lífinu og þar með talið í förðunarmálum, hún hefur alltaf eitthvað til málanna að leggja og hefur oftast rétt fyrir sér.

adf

Ef þú mættir velja hvern sem er í heiminum til að kíkja í snyrtitöskuna hjá, hvern myndir þú velja?

Væri nú alveg til í að skoða snyrtitöskuna hjá Beyonce ef ég fengi tækifæri til, en þar sem við erum ekki með nærri því sama húðlit væri það kannski ekkert gaman.

Beyonce-Best-Magazine-Covers-Pictures

Eitthvað að lokum?

Ekkert sem mér dettur svo sem í hug, bara verið óhræddar við að prófa ykkur áfram! Allt í lagi að gera mistök, vonandi getur maður þá bara hlegið af því seinna. Kveðjur á Krókinn! 

Fleiri fréttir