Ráðherra skipar í vinnumarkaðsráð Norðurlands vestra
Þann 23. nóvember sl. skipaði Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra fulltrúa í Vinnumarkaðsráð Norðurlands vestra. Vinnumarkaðsráð Norðurlands vestra 2015-2019 skipa eftirtaldir aðalfulltrúar:
Valgarður Hilmarsson, án tilnefningar, formaður
Aðalbjörg Valdimarsdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, varaformaður
Árni Egilsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands – samtökum opinberra starfsmanna
Bryndís Kristín Williams, tiln. af mennta- og menningarmálaráðuneyti
Jón Halldórsson, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
Guðmundur Örn Guðmundsson, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
Dagný Rósa Úlfarsdóttir, tiln. af Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Til vara:
Þórdís Friðbjörnsdóttir, án tilnefningar
Þórarinn Sverrisson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands
Vernharð Guðnason, tiln. af Alþýðusambandi Íslands – samtökum opinberra starfsmanna
Jóhann Ingólfsson, tiln. af mennta- og menningarmálaráðuneyti
Adolf H. Berndsen, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
Gunnlaugur Sighvatsson, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
Leó Örn Þorleifsson, tiln. af Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Samkvæmt 6. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, skipar ráðherra sjö manna svæðisbundin vinnumarkaðsráð. Í hvert vinnumarkaðsráð eru tilnefndir tveir ráðsmenn af samtökum launafólks á hverju svæði og tveir af samtökum atvinnurekenda. Jafnframt er einn ráðsmaður tilnefndur af sveitarfélögum á hverju svæði, einn af mennta- og menningarmálaráðherra og einn skipaður án tilnefningar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi þeirra sem tilnefndir eru sem aðalmenn.
Vinnumarkaðsráð á hverju svæði skal skila skýrslu til stjórnar Vinnumálastofnunar um stöðu atvinnumála í nóvember ár hvert ásamt tillögum um þær vinnumarkaðsaðgerðir sem mælt er með að lögð verði áhersla á árið eftir. Enn fremur skulu vinnumarkaðsráðin vera hlutaðeigandi þjónustustöð Vinnumálastofnunar til ráðgjafar um skipulag og val á vinnumarkaðsúrræðum.