Ráðstefnan um búsetuþróun til 2030 tókst vel

Síðast liðinn þriðjudag var haldin ráðstefna undir yfirskriftinni „Búsetuþróun til 2030“ þar sem Karl Friðriksson og Sævar Kristinsson, hjá Framtíðarsetri Íslands, kynntu niðurstöður sviðsmyndagreiningar um búsetuþróun á Íslandi til ársins 2030.  Sviðsmyndagreiningin er liður í gerð byggðaáætlunar fyrir árin 2017-2023 sem nú stendur yfir.  Ráðstefnan var vel sótt og gagnlegar umræður fóru fram.

Á heimasíðu Byggðastofnunar segir að hafa beri í huga að í sviðsmyndagreiningunni felist ekki spá um framtíðina, heldur geta þær hjálpað til við að skilja og lifa með óvissu, hvar ógnanir geta leynst og ekki síður hvaða tækifæri kunni að vera til staðar.

Ráðherra byggðamála, Gunnar Bragi Sveinsson, flutti ávarp og að lokinni kynningu sviðsmyndanna fór Þóroddur Bjarnason, prófessor, yfir hvernig hægt er að nýta niðurstöður sviðsmynda við stefnumótun í byggðamálum.

Nú er búið að setja inn á heimasíðu byggðaáætlunar 2017 – 2023, á slóðinni Sviðsmyndir, myndband með útsendingunni frá fundinum, glærukynningu Karls og Sævars á sviðsmyndunum og loks bæklinginn „Búsetuþróun á Íslandi til ársins 2030“. 

Fleiri fréttir