Rafmagnslína á veginum milli Miðsitju og Sólheima í Skagafirði
Rafmagnslína liggur á þjóðvegi 1 í Skagafirði milli bæjanna Miðsitju og Sólheima, unnið er að viðgerð og verður vegurinn lokaður á meðan. Víða er lokun á vegum enn í gangi, verið er að meta aðstæður gagnvart veðri og ástandi og unnið er að opnun þar sem hægt er.
Samkvæmt korti Vegagerðarinnar er Siglufjarðarvegur frá Hofsósi lokaður, ófært er í Blönduhlíðm, frá Varmahlíð að Öxnadalsheiði og Vatnsskarðið.
Þar sem vegir eru opnir á Norðurlandi er hálka eða flughálka, þó sérstaklega norðaustanlands.
„Lægðarmiðjan er nú rétt við Reykjanestánna og víða SA stormur 20-25 m/s austan miðjunnar á Suðurlandi og Vesturlandi fram á morguninn, en síðan snýst í SV 15-20 m/s suðvestan- og vestanlands um leið og lægðarmiðjan kemst inn á Faxaflóann. Alls staðar hefur hitastig komist upp fyrir frostmark á láglendi og mjög víða einnig á fjallvegum. Því er varasöm flughálka þar sem klaki hefur ekki tekið upp á vegum. Hviður verða 35-40 m/s á undir Hafnarfjalli fram eftir morgni. Eins hvasst eða 20-25 m/s í fjallahæð á Vestfjörðum fram undir hádegi,“ segir á vef Vegagerðarinnar.