Reiðnámskeið og sýnikennsla um helgina
Reiðnámskeið og sýnikennsla verður haldin í Reiðhöllinni Svaðastaðir helgina 21.-23. janúar. Kennari verður Guðmar Þór Pétursson. Sýnikennsla á föstudag, 21. jan, kl 20.
Kennt verður í þriggja manna hópum, klukkustund í senn en einnig er hægt að panta einkatíma. Skráning á námskeiðið er hjá Brynjólfi í síma 865-0946
Nú er gott að skella sér á námskeið í byrjun nýs tímabils, og taka svo veturinn með trompi, segja Riddarar Norðursins og senda öllum nýárskveðjur.