Réttir helgarinnar
Framundan er enn einn réttarhelgin, þar sem réttað verður í nokkrum fjár- og stóðréttum á Norðurlandi vestra. Stóðréttir í Skrapatungurétt verða á sunnudaginn, 20. september, og fjárréttir í Hvalsárrétt í Hrútafirði á laugadaginn kemur, 19. september.
Þá verða stóðréttir í Skarðarétt í Gönguskörðum og Staðarrétt á laugardaginn. Einnig verða fjárréttir í Hofsrétt í Vesturdal og Selnesrétt á Skaga á laugardag en fjárréttir í Hlíðarrétt í Vesturdal á sunnudaginn.
Sem fyrr tökum við gjarnan á móti réttarmyndum til birtingar á vefnum okkar en þær má senda á feykir@feykir.is.