Reykjastrandarvegur boðin út
Fyrirhugað að breikka Reykjastrandarveg og leggja á hann bundið slitlag eins og Feykir hefur áður greint frá. Nú hefur vegagerðin óskað eftir í tilboðum í endurbyggingu vegarins á 5,5 km kafla, frá Þverárfjallsvegi að Fagranesá.
Tilboðum í verkið skal skilað rafrænt í útboðskerfi fyrir klukkan 14:00 þriðjudaginn 27. júlí. Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að helstu magntölur séu:
- - Netgirðingar 6.450 m
- - Fylling úr skeringum og námum 16.150 m3
- - Fláafleygar úr skeringum og námum 20.550 m3
- - Ræsalögn 420 m
- - Styrktarlag, með efnisvinnslu úr bergi, 26.500 m3
- - Burðarlag, með efnisútvegun, 8.400 m3
- - Tvöföld klæðing, með efnisútvegun, 36.200 m2
- - Frágangur fláa 101.900 m2
/SMH