Röng jóladagskrá í Sjónhorninu
Þau leiðu mistök urðu við gerð nýjasta Sjónhornsins að í miðopnu blaðsins prentaðist tveggja ára gömul jóladagskrá fyrir Skagafjörð í stað nýrrar. Mistökin uppgötvuðust ekki fyrr en gengið hafði verið frá um helmingi upplagsins og því munu Húnvetningar og Skagfirðingar utan Sauðárkróks fá þessa röngu dagskrá í hendur og eru þeir beðnir afsökunar á því.
Athygli er vakin á því að auglýsing Skagafjarðar er á fjórum síðum en það er aðeins miðopnan sem er röng. Dagskráin fyrir uppákomuna á Kirkjutorgi þegar kveikt verður á jólatrénu er rétt og sömuleiðis er rétt dagskráin í Aðalgötunni og nágrenni sem er síðan á eftir miðopnunni.
Ekki ætti að fara framhjá glöggum lesendum Sjónhorns sem fá röngu jóladagskrána í hendur að hún sé röng, því að hún er bæði merkt árinu 2014 og dagarnir sem um ræðir eru um og upp úr miðjum desember í stað þessarar og næstu viku og passa þess heldur engan veginn inn í almanak ársins 2016.
Réttu jóladagskránni verður dreift sér, þar sem því verður við komið, á morgun og föstudag. Um leið og við biðjum lesendur enn og aftur afsökunar á mistökunum bendum við á að hægt er að skoða dagskrána á netinu með því að smella hér >