Rúmlega 170 þúsund söfnuðust styrktar Magnúsi

Síðastliðinn laugardag var haldinn dasleikur á Mælifelli til styrktar Magnúsi Jóhannessyni og fjölskyldu. Rúmlega 170 þúsund krónur  og voru það Hljómsveit Geirmundar, Kaupfélag Skagfirðinga og Mælifell sem stóðu að dansleiknum. Eins og von var á héldu Geirmundur og félagar uppi góðu stuði alla nóttina.

Á morgun laugardag verður Bjarni Gunnarsson kokkur á Grand hótel, gestakokkur á Ólafshúsi í tilefni af því verður boðið upp á 3ja rétta draumamáltíð fyrir aðeins 3.900.- Val er milli tveggja forrétta, aðalrétta og eftirrétta.

 

Hægelduð bleikja á asísku perumauki með piklaðri seljurót eða Tómatlöguð sjávarréttasúpa með hörpuskel og rækjum.

Grillað lambafille með kartöfluköku, sætkartöflumauki og rósmaringljáa eða Saltfiskhnakki eldaður í rósmarín og hvítlauk með dill-kartöflumús og julianne-grænmeti.

Lime-tart  með berja-compot eða Frönsk súkkulaðikaka með pekanhneturjóma og jarðaberjum.

Þarna er komið upplagt tækifæri til að eiga notalega kvöldstund eða hefja gott kvöld sem gæti jafnvel endað á dansleik á Mælifelli.

 

Fleiri fréttir