Sæunn Kolbrún ráðin skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Skagafjarðar

Á fundi byggðarráðs svf. Skagafjarðar sem fram fór í dag var greint frá því að Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir hafi verið ráðin í starf skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins.

Sæunn Kolbrún er með M.Sc. gráðu í skipulagsfræðum frá Landbúnaðarháskóla Íslands en hefur einnig lokið B.Sc. námi í umhverfisskipulagi frá sama skóla. Þá hefur Sæunn Kolbrún lokið margvíslegum námskeiðum sem tengjast störfum hennar undanfarin ár.

Sæunn Kolbrún hefur starfað sem staðgengill umhverfis- og landgræðslustjóra hjá Orku náttúrunnar og sem sérfræðingur í öryggis- og heilsumálum hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Hún er fædd og uppalinn á Hjaltastöðum í Blönduhlíð, dóttir Þórólfs Péturssonar og Önnu Jóhannesdóttur. 

Feykir óskar henni til hamingju með ráðninguna.

 

/SMH

 

Fleiri fréttir