Saga Sauðárkrókshafnar sett upp við smábátahöfnina á Króknum

Í byrjun ágústmánaðar var sett upp sögusýning Sauðárkrókshafnar við smábátahöfnina á Króknum og við sama tækifæri var smá skiki hellulagður og komið fyrir borðum og bekkjum þar sem gestir og gangandi geta slakað á, horft á bátana við bryggju og kynnt sér sögu hafnarinnar í leiðinni.
Hafnarsagan hafði áður verið sett á skilti og fest á svokallaðan hálfvita við Hesteyri, vestan við Syðra-Planið, en það eru sennilega um tuttugu ár síðan og myndir og letur farin að láta verulega á sjá undan sjávarseltu og geislum sólarinnar.
Hafnarstjóri, Dagur Þór Baldvinsson, sá að endurnýja þurfti skiltin og bæta aðeins við söguna sem var áður á þremur spjöldum og náði rétt fram á miðja síðustu öld. Nú er sagan á fimm spjöldum og nær fram á okkar daga. Það var Nýprent á Sauðárkróki sem hafði veg og vanda að hönnun og frágangi skiltanna.