Sálfræði- og geðhjálp á netinu

Tölum saman, er nýtt úrræði á vegum Kvíðameðferðarstöðvarinnar og Dags Bjarnasonar geðlæknis sem miðar að því að auka aðgengi almennings, þá sérstaklega fólks á landsbyggðinni, að gagnreyndri sálfræðimeðferð og ráðgjöf. Um er að ræða fjarþjónustu þar sem viðtal við sálfræðinginn fer fram með öruggum hætti í gegnum myndfundi á internetinu með forritinu Kara connect. Að sögn Dags hentar þessi þjónusta einstaklega vel þeim sem hafa ekki tök á, eða kjósa ekki, að nota hefðbundna sálfræðiþjónustu þar sem þarf að ,,heimsækja“ sálfræðinginn.
„Aðgengi að þjónustu sálfræðinga og geðlækna er af skornum skammti fyrir fólk á landsbyggðinni þótt þörfin sé talsverð. Margir þurfa að leggja í löng ferðalög til þess að leita sér aðstoðar fagfólks enda er lítið framboð af sálfræðingum og geðlæknum á landsbyggðinni. Talsverður tími getur farið í ferðir til og frá starfsstofu sálfræðinga með tilheyrandi vinnutapi og kostnaði,“ segir Dagur og bætir við að sumum finnist fyrstu skrefin inn á biðstofu sálfræðinga erfið, sérstaklega í smærri byggðum þar sem allir þekkja alla. Ofan á þetta bætist svo hár kostnaður við að sækja viðtöl hjá sálfræðingum. Þröskuldurinn að aðstoð er því oft ansi hár.
„Stór hluti landsmanna hefur mjög takmarkaðan aðgang en núna hefur teymi sálfræðinga og geðlæknis tekið ákvörðun um að taka höndum saman og beita kröftum sínum til að efla þjónustu við fólk á landsbyggðinni.“
Nánari upplýsingar um Tölum saman er að finna á tolumsaman.is.