Sala Neyðarkallsins stendur yfir
Neyðarkall björgunarsveita er fjáröflun björgunarsveita landsins sem felst í sölu á lyklakippu með áföstum björgunarsveitarmanni. Salan fer fram fram fyrstu helgina í nóvember ár hvert um land allt og á heimasíðu Landsbjargar segir að almenningur hafi tekið sölufólki afskaplega vel. Félagar úr björgunarsveitinni Skagfirðingasveit á Sauðárkróki ætla að standa vaktina líkt og áður og hefja sölu í dag í Skagfirðigabúð frá klukkan 14.00.
Að sögn Hafdísar Einarsdóttur munu sveitarmenn svo ganga í hús fram á sunnudagskvöld.
Þetta er ellefta árið sem sala Neyðarkallsins fer fram og björgunarsveitir landsins óska eftir því að landsmenn svari neyðarkalli björgunarsveitanna og kaupi óveðurskallinn sem kostar 2.000 krónur.