Sameiginlegir framboðsfundir Sjálfstæðisflokksins
Sameiginlegir framboðsfundir með frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi verða á Norðvesturlandi, sem hér segir:
Sauðárkrókur: Kaffi Krókur Aðalgötu, í dag miðvikudaginn 17. ágúst, kl. 20
Blönduós: Húnabraut 13 ( salur Búnaðarsambands Húnavatnssýslu og Stranda) fimmtudaginn 18. ágúst kl. 18.
Hvammstanga: Hlaðan kaffihús, Brekkugötu 2, fimmtudaginn 18. ágúst kl. 21.
„Allir velkomnir og eru hvattir til að nota tækifærið til þess að kynnast frambjóðendum, ræða við þá og skiptast á skoðunum um málefni kjördæmisins og landsmálin,“ segir í fréttatilkynningu.