Samið við Uppsteypu ehf. vegna áfanga II við sundlaugina á Króknum

Síðastliðinn föstudag undirrituðu Sveitarfélagið Skagafjörður og Uppsteypa ehf. verksamning um uppbyggingu við Sundlaug Sauðárkróks, áfanga II. Í verkinu felst uppsteypa á nýju laugarsvæði sunnan við núverandi sundlaug með barnalaug, buslulaug, kennslulaug, lendingarlaug, köldum potti ásamt tæknirými í kjallara.
Samningsupphæðin hljóðar upp á 189 milljónir króna og gerir verkáætlun ráð fyrir að verkið muni hefjast í byrjun mars næstkomandi og að því verði lokið eigi síðar en 30. október 2022.
Uppsteypa ehf. er skagfirskt fyrirtæki sem m.a. annaðist byggingu leikskólans á Hofsósi síðasta vetur.
Heimild: Skagafjörður.is