Samkomuhald um Laufskálaréttarhelgi fellur niður

Í tilkynningu frá stjórn Flugu ehf., eigenda og rekstarfélags reiðhallarinnar Svaðastaða á Sauðárkróki, segir að í ljósi aðstæðna muni allt samkomuhald á hennar vegum falla niður um Laufskálaréttarhelgi. Það þýðir að ekki verður haldin sýning á föstudagskvöldi né ball á laugardagskvöldi.

Hvernig réttarstörfum og aðgengi að réttum í Svf. Skagafirði verði háttað þetta haustið segir Arnór Gunnarsson, þjónustufulltrúi landbúnaðarmála í sveitarfélaginu, koma í ljós á föstudaginn eftir að landbúnaðarnefnd hefur farið yfir málið.

Leiðbeiningar yfirvalda vegna gangna og rétta vegna COVID-19 smitvarna
Gefnar hafa verið út leiðbeiningar vegna gangna og rétta vegna COVID-19 hættustigs almannavarna. Leiðbeiningarnar voru unnar í samstarfi almannavarna, sóttvarnalæknis, Landssamtaka sauðfjárbænda, Bændasamtaka Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Um er að ræða almennar leiðbeiningar um framkvæmd á göngum og réttum.  Það er síðan á ábyrgð sveitastjórnar, sem fer með stjórn fjallskilamála, að tryggja að reglum um sóttvarnir sé fylgt eftir og gefa út frekari leiðbeiningar ef þurfa þykir.  

Áhersla er lögð á að hver og einn beri ábyrgð á eigin athöfnum og að: „Við erum öll almannavarnir“.

Sjá HÉR

Fleiri fréttir