Sauðárkróksbakarí færir 6. bekkingum í Skagafirði Ofurhetjuna

Frá afhendingu bókanna til skólastjórnenda Árskóla. Frá vinstri: Óskar G. Björnsson skólastjóri, Róbert Óttarsson frá Sauðárkróksbakaríi og Hallfríður Sverrisdóttir aðstoðarskólastjóri. MYND: ÁRSKÓLI.IS
Frá afhendingu bókanna til skólastjórnenda Árskóla. Frá vinstri: Óskar G. Björnsson skólastjóri, Róbert Óttarsson frá Sauðárkróksbakaríi og Hallfríður Sverrisdóttir aðstoðarskólastjóri. MYND: ÁRSKÓLI.IS

Á stofujólunum í morgun fengu nemendur í 6. bekk í Árskóla afhenta bók að gjöf frá Sauðárkróksbakaríi, sem hvatningu til nemenda til lesturs yfir jólin. Um var að ræða bókina Ofurhetjan eftir Hjalta Halldórsson grunnskólakennara og rithöfund og fjallar um krakka sem berjast við einelti. Þetta var gert í tilefni af 140 ára afmæli Sauðárkróksbakarís sem gefur raunar öllum nemendum 6. bekkja skólanna í Skagafirði bókina og þá fá öll skólasöfnin eintök af Ofurhetjunni.

Bókinni fylgdi jafnframt kveðja frá höfundi með ósk um að spjalla við krakkana um bókina í gegnum fjarfundabúnað eftir jól: Kæri lesandi. Þú hefur nú fengið í hendurnar Ofurhetjuna. Bókin fjallar um leit aðalpersónunnar Gulla að ofurkraftinum sem mun breyta lífi hans til hins betra. Ég ætla ekki að ljóstra upp hvað gerist í bókinni en samt langar mig að segja þér leyndarmál. Þú ert ofurhetja. Innra með þér býr kraftur sem getur breytt lífi þínu, lífi annarra eða jafnvel heiminum öllum! Þú þarft bara að finna hann. Finndu kraftinn innra með þér og vertu ofurhetja! Með lestrarkveðju, Hjalti.“

„Þetta er fyrst og fremst hvatning til þess að fá krakka til þess að líta upp úr símunum. Krakkar í dag lesa minna en áður og einhver sagði að lestur væri mikilvægur til þess að örva ímyndunaraflið. Svo er þessi bók líka að taka á einelti sem eins og við vitum kemur upp á flestum stöðum og þarf alltaf að vera að ræða,“ sagði Róbert Óttarsson bakarameistari þegar Feykir hafði samband við hann.

Fleiri fréttir