Siggi Donna ráðinn þjálfari meistaraflokks karla
Sigurður Halldórsson, eða Siggi Donna eins og hann er jafnan kallaður, hefur verið ráðinn þjálfari hjá Tindastóli og mun þjálfa m.fl. karla á komandi tímabili. Í fréttatilkynningu frá knattspyrnudeild Tindastóls segir að Sigurður sé búsettur á Sauðárkróki og hafi áður þjálfað hjá félaginu, hann þekki bæði félagið og leikmennina inn og út.
Sigurður hefur þjálfað í öllum deildum í 24 ár, bæði m.fl.karla og kvenna sem og 2.flokk.
Sigurður byrjaði þjálfaraferil sinn 28 ára gamall hjá Völsungi sem þá voru í næstefstu deild en Sigurður hafði þá verið lykilmaður hjá ÍA sem varð tvöfaldir meistarar tvö ár í röð. Sem þjálfari hefur Sigurður farið sex sinnum upp um deild með m.fl. þar af tvisvar með Tindastól.
Sem leikmaður á Sigurður A landsleiki, U landsleiki, Evrópuleiki og um 350 m.fl. leiki, langflesta með ÍA. Fjórum sinnum varð hann íslandsmeistari og fjórum sinnum bikarmeistari
„Sigurður hefur átt farsælan feril bæði sem þjálfari og leikmaður og er boðinn velkominn til starfa,“ segir loks í tilkynningunni.