Sigríður Inga Viggósdóttir ráðin forstöðumaður Árvistar

Ráðinn hefur verið nýr forstöðumaður Árvistar á Sauðárkróki, Sigríður Inga Viggósdóttir og tekur við af Rögnu Fanneyju Gunnarsdóttur. Á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar kemur fram að Sigríður Inga sé með B.Sc próf í íþróttafræði og hafi víðtæka reynslu af störfum með börnum á grunnskólaaldri.

Í færslu sveitarfélagsins kemur einnig fram að Sigríður hefur verið verkefnisstjóri Vinaliðaverkefnisins undanfarin ár sem og stýrt starfi í Húsi frítímans og séð um skipulag á starfi í Sumar Tím í Skagafirði. Sigríður hefur reynslu af starfi skrifstofustjóra hjá Körfuknattleikssambandi Íslands sem og sviðsstjórastarfi á vegum Íþrótta – og Ólympíusambandi Íslands og hefur einnig sinnt körfuboltaþjálfun barna hjá Tindastóli.

Árvist er frístundaheimili í húsnæði Árskóla fyrir nemendur í 1. - 4. bekk skólans. Samstarf er við UMF Tindastól og geta því börnin sótt íþróttaæfingar í sínum viðverutíma, eftir því sem fram kemur á heimasíðu Árvistar. Auk aðstöðunnar í kjallara skólans er útisvæði skólans einnig nýtt,matsalur, bókasafn, tónmenntastofa og íþróttahús þegar færi gefst.

 

 

Fleiri fréttir