Sjálfstæðisflokkur með þrjá þingmenn en Framsókn og Vinstri græn einn samkvæmt fyrstu tölum

Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi voru birtar rétt fyrir miðnætti. Mynd: PF
Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi voru birtar rétt fyrir miðnætti. Mynd: PF

Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi hafa nú verið lesnar upp, þegar talin hafa verið 2000 atkvæði. Samkvæmt þeim næði Sjálfstæðisflokkur þremur þingmönnum kjörnum en Framsóknarflokkurinn einum og Vinstri græni einum. Björt framtíð er með 112 (5,6%) Framsóknarflokkur með 319 atkvæði (16%) Viðreisn með 137 atkvæði (6,9%), Sjálfstæðisflokkurinn með 654 (33,6%), Íslenska þjóðfylkingin með 3 atkvæði (0,2%), Flokkur fólksins með 56 atkvæði (2,9%), Píratar með 203 atkvæði (10,4%), Samfylking með 213 atkvæði (10,9%), Dögun með 24 atkvæði (1,2%) og Vinstri hreyfingin grænt framboð með 225 atkvæði (11,6%).

Samkvæmt fyrstu tölum yrðu eftirfarandi þingmenn Norðvesturkjördæmis:

Eva Pandóra Baldursdóttir (P)

Guðjón Brjánsson (S)

Gunnar Bragi Sveinsson (B)

Gylfi Ólafsson (C) - uppbótarsæti

Haraldur Benediktsson (D)

Lilja Rafney Magnúsdóttir (V)

Teitur Björn Einarsson (D)

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir (D)

Fleiri fréttir