Sjónhornið í Húnavatnssýslurnar
Frá og með þessari viku mun Sjónhornið, sem hingað til hefur verið ómissandi auglýsingamiðill í Skagafirði, verða einnig borið út á öll heimili í Húnavatnssýslum.
Að sögn Þuríðar Hörpu Sigurðardóttur, hjá Nýprenti sem gefur Sjónhornið út, er þetta liður í að þjónusta auglýsendur betur en ætlunin er að gera þetta til jóla og sjá svo til með framhaldið. „Ég vonast auðvitað til þess að auglýsendur á svæðinu sem og fyrirtæki og stofnanir í Reykjavík og á Akureyri muni sjá sér hag í að nýta sér aukna dreifingu auglýsingamiðilsins“ segir Þuríður.
Auglýsingapantanir og -skil þurfa að berast fyrir klukkan 16 á föstudögum í síma 4557171 eða á netfangið sjonhorn@nyprent.is