Skagfirðingar hvattir til að fara sparlega með heitt vatn

Spáð er miklum vindi og lágu hitastigi næstu daga norðanlands og verður því óvenju kalt á svæðinu, segir í tilkynningu frá Sveitarfélaginu Skagafirði en í veðuraðstæðum sem þessum reynir mikið á hitaveituna og eru íbúar hvattir til að fara sparlega með heitavatnið.

Fylgir tilkynningunni leiðbeiningar sem gott er að hafa í huga varðandi heitavatnsnotkun næstu daga:

•           Hafa glugga lokaða
•           Láta ekki renna í heita potta
•           Hafa útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur
•           Stilla ofna svo þeir séu heitir að ofan og nokkuð kaldir að neðan
•           Varast að byrgja ofna t.d. með gluggatjöldum eða öðru.

„Hjálpumst að og förum sparlega með heitavatnið!“

Fleiri fréttir