Skagfirðingasveit kölluð út í gærkvöld
feykir.is
Skagafjörður
11.04.2011
kl. 09.48
Á heimasíðu Skagfirðingasveitar kemur fram að um níu í gærkvöld var sveitin kölluð út í óveðursaðstoð en um var að ræða trillu sem var að losna frá bryggju vegna hvassviðris.
Mikið hvassviðri var á Sauðárkrók í gærkvöldi og samkvæmt mælum á flugvellinum fór vindhraði upp í 24m/s á þessum tíma og hviður nokkuð yfir 30m/s.
