Skagfirðingur líklega á leið á EM

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta sigraði lið Breta í æsispennandi leik í gærkvöldi, 69-71, en á meðal leikmanna í íslenska landsliðinu er Blöndhlíðingurinn Axel Kárason.

Samkvæmt vef Körkuknattleikssambands Íslands þýddi þessi sigur að Ísland lendir aldrei neðar en í 2. sæti í A-riðli, en í undankeppninni eru sjö riðlar. Sigurvegarar allra riðlanna fara áfram á Evrópumótið ásamt sex af sjö bestu sætunum í 2. sæti.

Með sigrinum í gær jukust því möguleikar á að næla sér í sæti á Evrópumótinu, en það verður þá í fyrsta skiptið í sögunni sem íslenska karlalandsliðið í körfubolta kemst á EM.

Fleiri fréttir