Skalli lýsir fullum stuðningi við Jón Bjarnason
Aðalfundur Skalla - félags smábátaeigenda á Norðurlandi vestra var haldinn á Sauðárkróki 30. september sl. Þar lýsti félagið fullum stuðningi við Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem tekið hefur ákvarðanir sem hleypt hefur lífi í sjávarbyggðir landsins.
Eftirfarandi ályktanir voru gerðar sem leggja á fyrir á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda sem haldinn verður 13. – 14. október í Kópavogi.
1. Þorskveiðiheimildir verði nú þegar auknar í 250 þús. tonn. Ennfremur verði ýsukvótinn aukinn í 60 þús. tonn og ufsaveiðar á handfæri gefnar frjálsar tímabilið 1. apríl - 31. ágúst.
2. Skalli styður hugmyndir um þyrlukaup sem fjármagnaðar verða með láni frá lífeyrisjóðunum.
3. Fyrirkomulag grásleppuveiða á vertíðinni 2012 verði með sama sniði á síðustu vertíð.
4. Skalli lýsir miklum áhyggjum yfir óábyrgum veiðum flottrollsskipa. Bent er á að skráning á meðafla er ábótavant og bendir félagið því til rökstuðnings að aðeins 13 skip sem stunduðu flottrollsveiðar á makríl og síld á tímabilinu 1. júlí til 31. ágúst hafa skráð grásleppu sem meðafla.
5. Skalli telur mikilvægi sjávarútvegsmála fyrir þjóðina gríðarlegt og því ekki tímabært að leggja ráðuneytið niður og sameina við atvinnuvegaráðuneyti.
6. Skalli lýsir fullum stuðningi við Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem tekið hefur ákvarðanir sem hleypt hefur lífi í sjávarbyggðir landsins.