Skipað í þrjú efstu sætin á lista Viðreisnar
Uppstillingarnefnd Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið hverjir skipa þrjú efstu sæti flokksins í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar. Gylfi Ólafsson, hagfræðingur frá Ísafirði leiðir listann og í öðru sæti verður Lee Ann Maginnis, verkefnastjóri Upplýsingamiðstöðvar ferðamála í Austur-Húnavatnssýslu. Þriðja sætið skipar Sturla Rafn Guðmundsson, svæðisstjóri Rarik á Vesturlandi.
Fullskipaður listi Viðreisnar verður gerður opinber 12. september næstkomandi ásamt listum flokksins í öðrum kjördæmum.