Skoða staðsetningu fyrir sjálfsafgreiðsludælu
Skeljungur hf. hefur hug á að setja upp sjálfsafgreiðsludælu fyrir smærri báta á Sauðárkrókshöfn. Sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs Svf. Skagafjarðar hefur verið falið að koma með tillögu að staðsetningu í samráði við hafnarstarfsmenn og Skeljung hf. Þetta kemur fram í fundargerð Umhverfis- og samgöngunefndar Svf. Skagafjarðar.
Í fundargerðinni segir að tekinn var fyrir tölvupóstur frá Skeljungi hf. þar sem fram kemur að fyrirtækið hafi hug á að setja upp sjálfsafgreiðsludælu fyrir smærri báta á Sauðárkrókshöfn. Spurt er um staðsetningu á slíkri dælu og minnst á vestur enda suðurbryggju sem mögulega staðsetningu.
Sem fyrr segir hefur sviðsstjóra verið falið að koma með tillögu að staðsetningu.