Skora á KS að endurskoða nýútgefin verð

Frá fundi Félags sauðfjárbænda í Skagafirði í Ljósheimum sl. mánudag. Mynd: Ástþór Örn Árnason.
Frá fundi Félags sauðfjárbænda í Skagafirði í Ljósheimum sl. mánudag. Mynd: Ástþór Örn Árnason.

Stjórn Félags sauðfjárbænda í Skagafirði boðaði til opins fundar sl. mánudagskvöld vegna mikillar lækkunar á afurðaverði til sauðfjárbænda, sem nemur allt að 12%. Á fundinn mættu um 70 manns, sem má teljast gott þar sem um annasaman tíma er að ræða fyrir bændur en göngur og réttir voru þessa helgi.

Formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, Þórarinn Ingi Pétursson, ásamt Svavari Halldórssyni framkvæmdastjóra mættu á fundinn. Einnig komu Ágúst Andrésson forstöðumaður Afurðastöðvar KS, Sigurjón Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóri, ásamt nokkrum úr stjórn KS.

Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda.Ágúst Andrésson gerði grein fyrir erfiðri stöðu Afurðastöðvarinnar og markaðsstöðu erlendis þar sem sterk staða krónunnar hefur neikvæð áhrif. Um 60% afurðanna fer á innanlandsmarkað og á þeim markaði kom fram hjá Svavari Halldórssyni að verð á lambakjöti hafi ekki haldið í við verðlagsþróun undanfarin ár.  Ef verð á lambakjöti yrði uppfært núna myndi það þýða yfir 50% hækkun út úr búð.

,,Ég trúi því að ef verð á lambakjöti á innanlandmarkað hefði skilað sínu, væru bændur ekki að fá þennan skell núna. Á sama tíma upplifa aðrir í þjóðfélaginu kjarabætur. Ég finn að bændum er mikið niðri fyrir. Hér er verið að lækka laun hjá þeim, sem hafa lítið kaup fyrir og í raun hafa undanfarin ár verið mögur líka. Ég efast um að við fáum einu sinni fyrir kostnaðinum“ segir Merete Rabølle, formaður FSS. Þétt setinn salur Ljósheima. Mynd: Ástþór Örn Árnason.

Eftir erindin hjá Ágústi og Svavari voru almennar fyrirspurnir og umræður og tóku margir til máls. Í lok fundar var samþykkt samhljóða ályktun þess efnis að skora á KS að endurskoða nýútgefin verð, sem er rúm 9% lækkun á afurðaverði síðasta hausts:

Ljósheimum, 12.09.2016

Almennur fundur sauðfjárbænda í Skagafirði,  haldinn í Ljósheimum 12. september 2016, mótmælir harðlega lækkunum á afurðaverði haustslátrunar 2016.

Fundurinn hvetur Kaupfélag Skagfirðinga til að hækka framkomin verð til að koma til móts við sauðfjárbændur  vegna þess alvarlega vanda sem nú steðjar að í rekstri þeirra búa. Kaupfélag Skagfirðinga hefur aðstoðað kúabændur  við uppbyggingu og styrkingu mjólkurframleiðslunnar, svo myndarlega síðustu ár, að eftir því hefur verið tekið. Nú er komið að sauðfjárbændum, þ.e. ef Kaupfélag Skagfirðinga hefur einhvern áhuga á því að sauðfjárrækt verði stunduð áfram á viðskiptasvæði félagsins.

Fleiri fréttir