Sláturtíðin hafin

Gærurnar hjá KS eru saltaðar í miklu tjaldhúsi sem staðsett er framan við sláturhúsið. Mynd: PF
Gærurnar hjá KS eru saltaðar í miklu tjaldhúsi sem staðsett er framan við sláturhúsið. Mynd: PF

 „Við gerum ráð fyrir því að slátra svipuðu magni og í fyrra,“ segir Ágúst Andrésson forstöðumaður Kjötafurðarstöðvar KS en þar hófst sláturtíðin í gær. Hjá SAH Afurðum á Blönduósi hófst hún þann 7. september og lýkur þann 28. október nk.

Eins og fram hefur komið í fréttum verða bændur fyrir skerðingu á afurðaverði þetta haustið frá sláturhúsum og er ástæðan rakin til samdráttar í útflutningi sem ekki virðist ætla að rætast úr. Ágúst segir bændur ekki glaða með þetta en sýna þessu skilning. „Við höfum boðað hækkun á okkar afurðum um 5% en það er líka orðið meira fyrir þeim að hafa. Samdráttur er í frosnu kjöti og þurfum við í auknum mæli að senda frá okkur þýtt kjöt og jafnvel úrbeinað,“ segir Ágúst. Á heimasíðu SAH Afurða segir að styrking krónunnar hafi haft neikvæð áhrif á útflutning sérlega á Noregsmarkað, þar sem styrking krónunnar gagnvart þeirri norsku hefur verið umtalsverð.

Fleiri fréttir