Slitnaði upp úr stjórnarviðræðum

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur stöðvað viðræður milli Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Í tilkynningu frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins segir að fundir flokkanna að undanförnu hafi leitt í ljós góðan samhljóm um ýmis mál, en áherslumun um útfærslu annarra, enda stefna flokkanna ólík á ýmsum sviðum. 

,,Ég tel að samtöl undanfarinna daga hafi leitt í ljós að það væri afar óvarlegt að leggja af stað með þann málefnagrunn sem um er rætt og nauman meirihluta inn í kjörtímabilið.  Margt segir mér að aðstæður kalli á  ríkisstjórn með breiðari skírskotun og sterkari meirihluta en þann sem þessir þrír flokkar geta boðið.  Ég útiloka ekkert fyrirfram í þeim efnum,” segir Bjarni.

Fleiri fréttir