Smábátasjómenn fagna stefnu nýrrar ríkisstjórnar
Drangey - smábátafélag Skagafjarðar hélt félagsfund þann 9. febrúar síðastliðinn og sendi frá sér ályktun þar sem fram kemur að félagsmenn fagna þeirri stefnu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að festa strandveiðar í sessi á þeim grundvelli að heimilt verði að stunda þær 12 daga á mánuði tímabilið maí - ágúst, án stöðvunar og skerðingar daglegra aflaheimilda.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Einar Einars áfram í oddvitasæti Framsóknarflokksins
Í kvöld funduðu Framsóknarmenn í Skagafirði í Framsóknarhúsinu við Suðurgötu en þar var kynntur til sögunnar framboðslisti flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara um miðjan maí. Oddvitasætið skipar sem fyrr Einar Eðvald Einarsson og líkt og síðast er Hrund Pétursdóttir í öðru sæti listans. Framsóknarflokkurinn fékk þrjá menn kjörna 2022 en þá var Hrefna Jóhannesdóttir í þriðja sætinu. Að þessu sinni er það Halldór Jón Sigurðsson (Donni) sem skipar það sæti.Meira -
Gömlu dansarnir í félagsheimilinu á Blönduósi föstudagskvöldið 6. mars
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 05.03.2026 kl. 13.41 siggag@nyprent.isFöstudaginn 6. mars, það er á morgun, verða þeir dansar sem í daglegu tali eru nefndir „gömlu dansarnir“ dansaðir í félagsheimilinu á Blöndusósi frá kl. 20-22. Þetta eru dansar eins og t.d. vals, ræl, polka, vínarkruss, masúrka og skottís og verða þeir félagar Benni og Skarphéðinn ásamt hljómsveit sem halda uppi fjörinu á staðnum.Meira -
Kjördagur fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar fer fram 16. maí nk.
Á heimasíðu Skagafjarðar er tilkynning þess efnis að sveitarstjórnarkosningarnar fari fram laugardaginn 16. maí nk. Einnig er vakin athygli á eftirfarandi dagsetningum er varða skilafrest framboða sem er kl. 12:00 þann 10. apríl og að utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefjist þann 17. apríl. Þá hefur yfirkjörstjórn Skagafjarðar opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is.Meira -
Tap í Blue-höllinni í gær
Það leið ekki langur tími á milli leikja hjá Stólastúlkum þessa vikuna og voru þær eflaust ennþá í sigurvímu eftir frábæran sigur á Stjörnunni síðastliðinn sunnudag. Í gær heimsóttu þær Keflavík í Blue-höllinni og má búast við að heimferðin hafi verið frekar döpur því niðurstaða leiksins var tap, lokatölur 77-67.Meira -
Glaðheimar stækka og fullbókað fyrstu þrjá mánuði ársins
Ferðaþjónustufyrirtækið Glaðheimar á Blönduósi eru í stöðugum vexti og gekk rekstur þess vel á síðasta ári, að sögn Lárusar B. Jónssonar framkvæmdastjóra. Í dag er gistirými Glaðheima á svæð-inu fyrir um 150 manns, þar af eru um 30 sumarhús í mismunandi stærðum og gistihús með rými fyrir um 16 manns. Í samtali við Húnahornið segir Lárus að bókanir fyrir árið 2026 hafi verið miklar og að fullbókað sé fyrstu þrjá mánuði ársins. Í ljósi þess hafi eigendur Glaðheima ákveðið að auka verulega við gistiplássið, eða um það bil fyrir 50 manns til viðbótar.Meira
