Smuga á Ytri-Hofdölum í Skagafirði mjólkaði mest á síðasta ári
Niðurstöður skýrsluhaldsins í nautgriparæktinni fyrir árið 2020, bæði í mjólkur- og kjötframleiðslunni hafa nú verið reiknaðar og birtar á vef Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins. Nythæsta kýrin á landinu síðasta árs reyndist vera Smuga á Ytri-Hofdölum í Viðvíkursveit í Skagafirði en hún mjólkaði alls 14.565 kg með 4,89% fitu og 3,34% próteini. Í samantekt skýrslu RLM segir að burðartími Smugu hafi fallið ágætlega að almanaksárinu en hún bar sínum sjötta kálfi 3. nóvember 2019.
Hæsta dagsnyt kýrinnar á nýliðnu ári var 52 kg og var hún í yfir 40 kg dagsnyt fram á sumar eða til loka júnímánaðar. Smuga er fædd á Skúfsstöðum í Hjaltadal í maí 2011 en var keypt að Ytri-Hofdölum rétt fyrir sinn fyrsta burð, 3. ágúst 2013. Skráðar æviafurðir hennar voru 67.865 kg um síðustu áramót en á yfirstandandi mjólkurskeiði er hún komin í 17.322 kg mjólkur.
Halldór Jónasson bóndi á Ytri-Hofdölum og eigandi kýrinnar segir hana hafa ætið verið hrausta og geðgóða og eigi það sinn þátt í árangrinum. „Hún ber í nóvember 2019 en það kemst ekki kálfur í hana fyrr en seint. Hún á ekki að bera aftur fyrr en í júlí í sumar, hún tekur sér þarna dálítinn tíma. Það var svo vont að koma kálfi í hana. Það er nú aðal skýringin á þessu mikla magni sem hún mjólkar,“ segir Halldór.
Á Ytri- Hofdölum er básafjós og brautakerfi og segir Halldór fjölda kúa yfirleitt vera um 30. „Þetta er bara kotbúskapur í dag miðað við þessa stóru,“ segir hann og hlær en það hefur gengið vel og auðvitað hafi hann hugsað út í að breyta í róbótafjós. „Það kemur sjálfsagt að því að maður verði að gera eitthvað,“ segir hann. Hann segir að básafjós séu enn í gildi og verði það næstu árin en fara þurfi eftir settum reglum.