Sögu- og pizzukvöld á Sólgörðum í Fljótum

Sögu- og pizzukvöld verður haldið á Sólgörðum í Fljótum annað kvöld, föstudaginn 22. febrúar. Þetta er þriðja sögukvöldið sem haldið er á Sólgörðum í vetur. Að þessu sinni ætlar Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir, kennari og frásögukona á Hofsósi, að segja vel valdar draugasögur úr Fljótum en eitthvað mun vera um magnaða drauga á þeim slóðum, s.s. Þorgeirsbola og Barðsgátt. Sagnastundin hefst kl. 19:30.

Gestum gefst einnig kostur á að gæða sér á veitingum og verða pizzur afgreiddar frá kl 18:00. Þeim má renna niður með gosi, öli, rauðu eða hvítu og fá sér svo íspinna á eftir.

Aðgangseyrir á sögukvöldið er 300 kr. fyrir börn og 500 kr. fyrir fullorðna en fritt fyrir matargesti

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir